Tíðis | Fimmtudagurinn 2. september 2010 kl. 8:15 Óbreytt gjaldskrá Tónlistaskóla Vesturbyggar
Tónlistarskóli Vesturbyggðar verður settur laugardaginn 4. september nk. kl. 13.00 í skólanum við Stekka 21 á Patreksfirði.
Kennarar við skólann í vetur verða þeir sömu og sl. starfsár, þær systur Elzbieta og Mariola Kowalczyk.
Kennt verður á píanó, hljómborð, orgel, gítar, bassa, fiðlu, selló og blokkflautu. Einnig verður kenndur söngur eins og t.d. klassískur, jass, popp og rokk söngur, sönghópur / hópar, samsöngur, samspil nemenda tónfræði, tónheyrn og fl. Einnig verða hóptímar fyrir börn á leikskólaaldri. |

|
Bæjarins Besta - bb.is | Þriðjudagurinn 24. ágúst 2010 kl. 14:06 Slæmir vegir fæla ferðamenn frá
Steinunn Hjartardóttir, hótelstjóri í Flókalundi í Vatnsfirði segir hvergi á landinu sé að finna eins slæma vegi og á Vestfjörðum. Sigurður Atlason, formaður Ferðamálasamtaka Vestfjarða tekur undir með Steinunni og segir margra ára gamlar ályktanir samtakanna eigi jafnt við í dag sem þá. Steinunn segir að slæmir vegir og hækkun gjaldskrár ferjunnar Baldurs hafi fælt ferðamenn frá svæðinu í sumar. Hún segist hafa heyrt af fólki sem ætlað hafi á Vestfirði en hringt á undan vegna þess að það hafi heyrt að þangað væri ófært. Sigurður segir að réttast væri að dusta rykið af gömlum ályktunum samtakanna því inntak þeirra og baráttumál væru enn að langmestu leyti í gildi. Góðar samgöngur séu forsendur ferðaþjónustu. Frá þessu er greint á ruv.is. |
|
Tíðis | Mánudagurinn 23. ágúst 2010 kl. 14:34 Fréttablaðið Fjörðurinn lítur dagsins ljós
Um mánaðarmótin kemur fyrsta tölublað af Firðinum en þar verða fréttum af svæðinu gerð skil ásamt auglýsingum frá fyrirtækjum. Blaðið verður útgefið 2svar í mánuði og prentað í Reykjavík. Á meðal efnis í nýju tölublaði verður Matgæðingurinn, viðtalið og smáauglýsingar.
Ritstjóri Fjarðarins er Tálknfirðingurinn, Sverrir Júlíusson. Sverrir tekur á móti fréttum og auglýsingum á netfanginu fjordurinnfrettir@gmail.com og í síma 777-0508. |
|
Tíðis | Laugardagurinn 21. ágúst 2010 kl. 15:02 Ljótu hálfvitarnir á Patró í kvöld
Ljótu hálfvitarnir verða með tónleika í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði í kvöld kl. 21.
Ljótu hálfvitarnir lýsa sér sem níu misþroska vitleysingar úr Þingeyjarsýslunum, sem kunna mjög lítið í mjög mörgu.
Þeir hafa heldur betur slegið í gegn hér sem annarsstaðar á landinu. |
|
ruv.is - Ríkisútvarpið | Laugardagurinn 21. ágúst 2010 kl. 14:58 Sýslumaður segir vegi hættulega
Sýslumaðurinn á Ísafirði og Patreksfirði segir ástand vega á svæðinu vera ömurlegt. Hann hefur verulegar áhyggur af öryggi vegfarenda og segir vegi víða ófæra venjulegum fólksbílum.
Úlfar Lúðvíksson, sýslumaðurinn á Ísafirði og Patreksfirði og lögreglustjóri á Vestfjörðum, sendi nýverið bréf til vegamálastjóra og samgönguráðherra þessa efnis. Í bréfinu segir Úlfar að lögregla hafi réttmæta ástæðu til að hafa verulegar áhyggjur af öryggi vegfarenda, og að í dag megi með réttu segja að vegurinn sé á löngum vegarköflum ófær venjulegum fólksbílum.
Lögregla, sjúkra- og björgunarlið þurfi að eiga greiða leið um veginn, ekki síst þegar mikill fjöldi ferðamanna á leið um svæðið. Stjórnvöld þurfi að gera upp við sig hvort vegur um Dynjandisheiði eigi að vera opinn fyrir almenna umferð. |

|
Tíðis | Fimmtudagurinn 5. ágúst 2010 kl. 9:10 Pönk á Patró II
Pönk á Patró verður haldið í Sjóræningjahúsinu á laugardaginn í annað sinn í sumar.
Dagskráin er glæsileg en það er Amiina sem fetar í fótspor hljómsveitarinnar Pollapönks sem gerði góða ferð á Patreksfjörð 26.
júní síðastliðinn. Tónlistarsmiðjan sló í gegn og Pöllapönk sömdu glænýtt lag með krökkunum sem var svo frumflutt um kvöldið þegar foreldrar mættu á kvöldtónleikana. Myndband af laginu má finna á youtube (pollapönk á Patró)
Klukkan 13 mun Amiina stjórna tónlistarsmiðju á sinn einstaka hátt og býður öllum krökkum og unglingum að koma og taka þátt. Sérstaklega eru nemendur tónlistarskólans boðnir velkomnir þar sem þessar stúlkur fara óhefðbundnar leiðir í tónlistarfluttning. Til dæmis er leikið á glasafón, sög, hörpur og spiladósir.
|
|
Morgunblaðið á netinu - mbl.is | Þriðjudagurinn 27. júlí 2010 kl. 18:20 Nýr bæjarstjóri Vesturbyggðar
Ásthildur Sturludóttir hefur verið ráðin bæjarstjóri Vesturbyggðar. Hún tekur við af Ragnari Jörundssyni sem var bæjarstjóri síðusta kjörtimabil.
Alls sóttu 23 um starf bæjarstjóra en 6 umsækjendur drógu umsóknir sínar til baka. Eftir úrvinnslu umsókna og viðtöl, ákvað bæjarráð að synja öllum umsækjendum. Ákveðið var að leita til Ásthildar sem ekki var á meðal umsækjenda. Ásthildur verður búsett á Patreksfirði og kemur til starfa í byrjun september næstkomandi. |
|
Tíðis | Föstudagurinn 23. júlí 2010 kl. 15:05 Tálknafjör hefst í dag
Bæjarhátíð Tálknfirðinga, Tálknafjör, hefst í dag með drulluratleik 16 ára og eldri. Brenna og Bollasúpa verður í Naustatanga í kvöld.
Af nógu er að taka og ættu því allir að finna sér eitthvað við hæfi. En á meðal dagskrárliða fyrir yngri kynslóðina er Dorgveiðikeppni í fyrramálið og leikir og hoppukastalar á íþróttavellinum síðdegis. |
|
Tíðis | Fimmtudagurinn 22. júlí 2010 kl. 11:00 Afmælistónleikar Jóns Kr. Ólafssonar framundan
Stórsöngvarinn Jón Kr. Ólafsson verður sjötugur þann 22. ágúst næst komandi. Af því tilefni ætla nokkrir vinir og velunnarar Jóns að standa fyrir afmælistónleikum honum til heiðurs. Fjöldi landsfrægra tónlistarmanna mun koma fram á tónleikunum auk þess sem að Jón Kr. stígur sjálfur á stokk og flytur nokkur af sínum vinsælustu lögum. Tónleikarnir verða haldnir í lok september og verða nánar auglýstir síðar.
Jón Kristján Ólafsson er fæddur 22. ágúst 1940 og ólst upp og býr á Bíldudal. Hann er landsmönnum að góðu kunnur og hefur oft skemmt þeim með söng sínum gegnum árin. Jón Kr. var söngvari í danshljómsveitinni Facon og einn af fjórum stofnendum hennar árið 1962. Hann söng einnig í hljómsveit Jóns Ástvaldar Hall Jónssonar og hefur komið fram og sungið á óteljandi skemmtunum á Bíldudal, í Reykjavík og víðar um landið. |
|
Pólitíkin |
Geir Gestsson - 4. maður á lista Sjálfstæðisflokksins í Vesturbyggð | Miðvikudagurinn 26. maí 2010 kl. 17:00 Hvað gerist næstu fjögur ár ?
Það er spennandi að kjósa sér forystu í sveitarstjórnarmálum. Frambjóðendur koma fram á sjónarsviðið margir með reynslu af þessum málum, aðrir óreyndir en þá með annars konar reynslu sem er bara gott. Oftar en ekki keppast frambjóðendur við að lofa hinum ýmsu verkefnum, oft af kappi fremur en forsjá. Sumir benda á að ekki sé tími loforða um framkvæmdir, aðrir segja að nú verði að framkvæma til að laða að fleiri sem skili pening í sveitasjóð. Það eru mismunandi skoðanir uppi á borðum og það er þitt ágæti kjósandi að velja hvaða skoðun er að þínu mati rétt og kjósa okkur framtíð. Meira
|
Aðsendar greinar / Pistlar |
Hátíðarræða Guðrúnar Eggertsdóttur sjómannadaginn 2010
Hér erum við saman komin á hátíðisdegi sjómanna á árinu 2010. Sjómannadagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur hér á Patreksfirði árið 1941 og verður sjómannadagurinn á Patreksfirði því haldinn hátíðlegur í sjötugasta sinn á næsta ári.
Sjómannadagurinn er hátíðisdagur sjómanna og fjölskyldna þeirra sem og hátíðisdagur þjóðarinnar allrar. Á þessum degi hyllum við einnig þá sem hafa lagt okkur til lífsbjörgina í gegnum aldirnar og minnumst um leið liðinna sjómanna með virðingu og stolti.
Þessi dagur er ekki síður mikilvægur baráttudagur fyrir réttindum sjómanna. Vinnuumhverfi sjómanna hefur sem betur fer tekið miklum breytingum til batnaðar undanfarin ár. Það hefur mikið áunnist í réttindamálum sjómanna frá því þegar vökulögin voru samþykkt árið 1921 sem tryggði sjómönnum á botnvörpuskipum loks 6 tíma hvíld á sólarhring. Meira
|